You crasy bird..
30.01.2008 23:04:47 / Bökk-Master

Þjóðhátið 2008

Nú er kominn tími til að panta ser flug á Þjóðhátið 2008:) Ég er nefnilega að fara á ættarmót um verslunarmannahelgina (glórulaus tímasetning) og þess vegna ætla ég að fljuga á þjóðhátíð á sunnudeginum og ná honum alveg eins og síðast... Nú þegar ég tala um þjóðhátíð þá fer ég ósjálfrátt að hugsa um allar minningarnar sem maður á frá eyjunni góðu:)

Topp 5 minningarnar frá þjóðhátíð

Nr.5: Þegar að Gummi Óli kom inn í tjald og sagðist hafa verið að missa sveindóminn... Við spurðum hvaða stelpa það hafi verið og hann svaraði ,,ég veit það ekki, en hún var allavega FEIT og LJÓT".. Ógleymanlegt atvik, gott ef að hann tók svo ekki vúhú öskrið sitt þegar hann var búinn að æla þessum fögru orðum um hjásvæfu sina út úr sér:)

NR.4: Þegar XXX Rottweiler tóku Þér er ekki boðið og gerðu Árna Jonsen alveg kolbrjálaðan og það endaði með að hann reif þá úr sambandi... Ég man að ég og Mókurinn vorum fyrir framan sviðið og hoppuðum eins og enginn væri morgundagurinn

Nr.3: Þegar ég stal heilli eplasnafsflösku af einhverjum dópistum sem að við gistum hjá í húsi.. Þetta er svona dæmi um það þegar ég hugsa ekki neitt áður en ég framkvæmi.. Ég sá s.s. þessa flösku þegar ég var að labba út úr húsinu á sunnudeginum og fór til Heiðars Inga og þeirra og gaf þeim aðeins með mér af henni:) Svo hringdi Dagný alveg brjáluð og spurði ,,Birkir, tókstu eplasnafsið sem var hérna?" og ég svaraði orðrétt svona ,,uuuu jaaá" og hún skipaði mér að koma með hana til baka áður en hún yrði drepin.. hehe ég skilaði flöskunni, nánast eins og ég tók hana:) Óborganlegt atvik þegar að Dagný sá mig keyra fram hjá húsinu í einhverjum bekkjarbíl, haldandi á eplasnafsflöskunni:) Fokk!!

Nr.2: Þegar ég og Andri leigðum einhverja efri hæð í beytuskúr af manni í Vestmannaeyjum.. Hann var mjög almennilegur og hjálpaði okkur að koma okkur fyrir og svona, en það var eitt smá atriði sem hann "gleymdi" að segja okkur frá. Já fyrir nokkurm árum þá hengdi maður sig á efri hæðinni og hefur verið að gera beytningamönnum í eyjum lífið leiðinlegt og fer enginn að beyta þar fyrr en eftir kl 8 á morgnanna!! Ég og Dagný fórum svo heim á sunnudeginum og gistum á efri hæðinni en við vorum ekki ein því að draugurinn skelltu hurðum og lét öllum illum látum og við máttum gjöra svo vel og hlaupa út í bíl með sængurnar utan um okkur og gista í tjaldinu hennar Dagnýjar... Shitt hvað ég var hræddur

Nr.1: Eftirminnilegast á þessum þjóðhátíðum sem ég hef farið á er sunnudagurinn síðast.. Þegar rauðu ljósin komu og brekkusöngurinn og ég veit ekki hvað og hvað... þvílík snilld!!!

Vonandi verður fjölmennað á þjóðhátíð í ár.. Jón Friðrik, bangsapabbi og Pálmi, eruði klárir?


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 13:46:57 / Bökk-Master

Kemur á óvart

Jæja ég ætti að vera að lesa núna um heilann en ég hef alveg verið upptekinn við að horfa á Stöð 2.. Ég hef fylgst með því að ný borgarstjórn tekur við völdum í Reykjavík. Ég nenni nú ekki að vera að blogga um sögu málsins í heild enda að mínu mati er þetta allt saman orðinn einn skrípaleikur.. Pant vera borgarstjóri næst segji ég nú bara:) En svo eru það þessir mótmælendur, ég hef aldrei verið neinn séstakur aðdáandi þeirra.. Það er lið mætt þarna í Ráðhúsið og er að mótmæla því sem er að gerast.. Fólkið sem er að mótmæla því að Villi og þessi Ólafur séu að nýta sér stöðu sína til að ná VÖLDUM og RÁÐA.. En svo er það að kvetja Björn Inga Hrafnsson til að halda áfram en eins og ég sé þetta var það einmitt hann sem að fór í valdaslag og var einn af þeim sem stofnaði 4 flokka borgarstórn fyrir nokkrum mánuðum.. Björn sagði við fjölmiðla í dag að hann ætlaði að hætta í pólítík en nú nokkrum tímum síðar er hann að spá í að halda áfram:) Ég get ekki tekið svona mann alvarlega... En ég mundi bara vilja að það væri kosið upp á nýtt.. Það væri held ég besta lausnin.. En ég ætla samt ekki að ganga niðrí Ráðhús og öskra og sveifla höndum.. Ég væri löngu búinn að henda þessu liði öfugu út því að ef það getur ekki farið eftir reglum þá verður bara að henda þeim út.. Það kom mér heldur ekkert á óvart hvaða lið er að mótmæla þarna.. Aðalega konur síndist mér og sú sem fór mest fyrir þarna var einhver lesbíuklippt stelpa með einn rauðan hanska og var bara eins og fífl!! Ég hefði reyndar ekki hent henni út, ég hefði hent henni niður af svölunum... Svo var Hörður Torfa þarna og fleiri... Sóley Tómasdóttir er þarna (kemur á óvart)... Svo var viðtal við einhverja stelpu þarna sem var spurð ,,hverju ertu að mótmæla?" og hún svaraði ,,æji bara öllu þessu rugli". Ég vill fá almennileg mótmæli ef það á á annan borð að mótmæla!!! Mér fannst samt Svandís Svavarsdóttir svöl þegar hún var að fara með sín mál:) Hef ekki haft mikið álit á henni hingað til... En ég mun sennilega aldrei mótmæla nema þá ef ég veit að ég mun fá einhverju breitt... É mun aldrei hengja mig á gröfu og halda að það verði hætt við að byggja stóriðju út af því.. En það er bara ég, ég spila bara með:)

áfram ísland á eftir!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 12:06:18 / Bökk-Master

Ráðhúsið

Nú er ég að horfa á fréttir á Stöð2.. Ég held að það hafi aldrei verið meiri ástæða til að kalla til óeirðarlögreglu til að fara fyrir framan ráðhúsið og henda handsprengjum á hópinn sem er þar fyrir utan!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 00:47:30 / Friðrik

Hómfríður á kálfaströnds.. uss sú gamla:)

Ég datt inn á þessa síðu og helduru að kallinn sé þá ekki bara byrjaður að blogga... svo þá er nú best að ég hendi inn einu blogg nuna, það er aldeilis að Andri er í deiglunni, greynilegt að það er allt að gerast hja stráknum núna..

    Svo eruð þið nottla svo þroskaheftir með þetta veðmál ykkar.. sé samt að potturinn er orðinn ansi góður:)

 Svo er strákurinn kominn í nýja vinnu, sem er svona líka aldeilis fín. kvarta svo sannarlega ekki þar!

 

En mál málanna er það, hvort að ekki skuli vera kominn tími á matarklúbb? og væri ekki góður tími þá um miðjan næsta mánuð? spurning um að heyra í prilla, hef nú bara ekki hitt strákinn í heil langan tíma..  

Sé ykkur á röltinu! 


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 12:36:01 / Bökk-Master

EM

Manni hlakkar altaf mikið til þegar að einhver stórmót í handbolta eru að fara að hefjast. Ekki er ég mikill handboltaunnandi enda er ég sammála því sem að einn góður maður sagði ,,körfubolti er íþrótt án snertingar en handbolti er snerting án íþróttar" :) En altaf lendir maður í geðveikinni sem að fylgir þessum stórmótum... Leikurinn í gær var nú ekkert sérlega góður hjá okkar mönnum en það var einn ákveðinn maður sem vann þennan leik í gær og það var vinur Pálmars hann Thomas Svenson... Hann er náttulega ekki eðlilega góður!! En ég horfði reyndar ekki á allan leikinn:( En svo þegar maður er rétt að ná sér eftir þessa skelfilegu byrjun þá kemur fréttin sem maður vildi síst af öllum fréttum heyra ,,Ólafur Stefánsson ekki með um helgina, er með rifinn vöðva aftan í læri" !!! Þetta er bara svipað og Ronaldo mundi meiðast hjá United, allt fer til anskotans. Nú er ég hins vegar að spá hvaða vöðva Óli er tognaður í, er það biceps eða semi membranosus, nú kanski er það bara semi tendonosus, já maður spyr sig:) hehe.. Svo er náttulega eitt í þessu vali á markmönnum, tveir bestu markmenirnir okkar eru bara heima upp í sófa að putta sig í rassinn á meðan að Birkir og þessi Hreiðar eru að verja tvö til þrjú skot samanlagt.. Pálmar út með 1. vél!!! En ég vona samt að hinir sem eftir eru standi vaktina og klári þessa tvo leiki sem eftir eru:) Hef trú á Snorra, hann er svona sá sem kemst næst því sem Óli hefur í leikskilningi. En ég held með Íslandi enþá!!

Later


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 02:47:18 / Bökk-Master

See sheperd

Þeir voru magnaðir See Sheperd gaurarnir sem fóru um borð í japanskt hvalveiðiskip til að mótmæla, eða réttara sagt til að færa skipsmönnum eitthvað bréf.. Þeir brugðust hins vegar við því með að hengja þá upp í masturin (eða þið vitið;) og þar fengu þeir að dúsa í smá tíma.. Kennir þeim kanski smá lexíu.. Svona verður bara að gera stundum, eins og þegar ljóta fólkið sem var að mótmæla kárahnjúkavirkjun batt sig við krana til að mótmæla. Það þurfti að stöðva vinnu til að losa þessi grey. Ef ég hefði verið maðurinn á krananum þá hefði ég sagt orðrétt ,,heyrðu þú þarna, viltu losa þig og hipja þig niður á jörðina". Ef hann/hún mundi ekki hlíða þá hefði ég bara haldið áfram að vinna:) Mótmæli eru alveg stundum góð, en þegar menn eru að gera einhverja svona gloríu þá er þetta of langt gengið!!

Ég var hins vegar að skoða hitt og þetta á youtube áðan og þar rakst ég alveg óvart á þetta glæsilega lag sem ég er að spá í að tileinka Jóni Friðrik sem á ammæli í dag.. Þetta er eitt mesta hetjulag allra tíma og takiði eftir þegar að viðlagið byrjar í fista skiptið, þá sparkar konan svona út í loftið, þá fæ ég gæsahúð:) http://youtube.com/watch?v=oKTiwCez6Zs

En allavega þá er Andri uppteknasti maður á íslandi í dag.. Það hefur sést til hans á vappinu um bæjinn með einhverri dömu upp á arminn, ég frétti af þeim á Rvk pizacompany og þar á eftir var mér sagt að þau hafi sést leiðast í bíói :) Gaman að þessu..  Svo stendur potturinn í Friðriksveðmálinu í 25000 kallinum og allir eru velkomnir að vera með:)

Sigga Lára is out


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 14:27:16 / Bökk-Master

Bara skrifa smá:)

Jæja ég ætla að fá að henda inn einstaka bloggum hérna svona til að stytta mér stundirnar:) Það hefur mikið vatn runnið til sjávar eftir að síðasta færsla var færð hér inn.. T.d þá er Jón Friðrik orðinn pabbi, ég er búinn að kaupa mér íbúð, matarklúbburinn HÁK kominn af stað, Andri Valur kominn með kærustu, Hóssý systir flutti til Flórída, feministar eru orðnir meira óþolandi en þeir voru, Pálmi hætti að drekka, ég fór að vinna hjá glæpafyrirtæki í smá tíma, ég og maggi fórum ó ógleymanlega tónleikaferð til Danmerkur, Pálmi kom í 5 min í ammælið mitt, Pálmar er orðinn sagnfræðingur, Viktor orðinn lyfjafræðingur og ég er aftur kominn í skóla:) Svo náttulega ómar bróðir að verða pabbi sem er spennandi.. jeijj...

En já ég er farinn að læra sjúkraþjálfun í HÍ og líkar það ágætlega bara.. Er reyndar í fáránlega leiðinlegum tíma núna sem er liffærafræði 2 en hún fjallar um hausinn og hálsinn, ég er að pæla í sjónvarpsþáttum sem voru á dagskrá RÚV einu sinni um sálfræðinginn Freisier, ég held að hann hafi verið látinn heita Frasier Crane vegna þess að hauskúpan er cranium á latínu og hann var náttulega að fást við það sem gerðist inn í cranium á fólki CRANE = CRANIUM... Ég fer á barinn í kvöld og spyr gáfaða fólkið að þessu, það hlítur að vita þetta:) En eins og ég segji þá ætla ég að henda inn færslum hérna af og til svo að fylgisti með og verið dugleg að kommenta... Held samt að ég láti það eiga sig að blogga um kvennafrídaginn;)

 Later


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 14:09:37 / Bökk-Master

Freski eg er til

Já það væri ekki svo vitlaust hjá okkur að fara að blogga aftur, spurning um að skipta gamla lúkkinu út og fara í eitthvað ekta;) Kem með færslu um nýja síðu bráðlega:) er að safna sponsurum....

 

Later


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 21:33:29 / Friðrik

fluttur suður..

Jæjaja... það er orðið eithvað síðann maður skrifaði eithvað hérna.. svo ég er að hugsa um að bæta úr því afþví ég nenni ekki að læra:) svo var það spurning um að opna þessa síðu aftur ef að ekki allir eru búnir að gleyma henni, en ritstjórinn (birkir) fær að hafa lokaákvörðun um það..  við sjáum hvort við nennum því:)

         strákurinn er fluttur suður og valdi sér ekki slakari stað til að búa á en á hóteli.. maður verður að reyna að klára þennan blessaða skóla.. og það er búið að vera fínt hérna á þessum mánuði sem ég hef verið  hér, t.d. var mataklúbbur um daginn hjá okkur strákunum og var hann alveg hreint snilld,  ég vissi að ég myndi eiga eftir að hlægja mig máttlausan þetta kvöld en aláttugur hvað ég var nálægt því að láta lífið úr hlátri á tímabili.

    við birkir sáum um matinn og held að það haf i bara tekist bærilega allavega voru menn frekar saddri:) svo var gítarinn tekinn eins og venjulega og hlegið og sungið og farið í bæinn.. 

    það stendur til að setja næsta klúbb á að mig minnir seint í næsta mánuði.. og varla verður hann leiðinlegri:)

     

En ég ætlaði ekki að hafa þetta langt, langaði bara að tjekka á viðbrögðunum.. 

 

    en kannski kemur annað blogg fljótlega svo sjáumst..


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 21:17:50 / Friðrik

Kominn á myspace!!

Kominn á myspace hveðja Friðrik!!

www.myspace.com/jonfridrik


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 12:35:30 / Bökk-Master

Ný síða

 

www.vagninn.blog.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 13:31:35 / Justin

Looouuuuiiiissss!!!!!

http://www.youtube.com/watch?v=Jm9yDKizlpA&NR

Jújú... viðurkenni að ég þurfti stundum að gera trikkið oftar en einu sinni!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 12:17:37 / Bökk-Master

Russian girl

Jæja ég sit hérna og er að skoða jólagjafir á netinu:) Jólagjafir sem ég á að fá einmitt!! En þegar að jólin nálgast er nánast ekki annað hægt en að fara að hugsa um gamla tíma og ég verð að viðurkenna að ég glotti út í annað þegar ég er að hugsa um suma hluti :) T.d. er ein minningin tengd skoðunarkönnuninni sem er nú í gangi:D En já shitturinn maður, svo hugsa ég líka um allar perlurnar sem að eiga heima á Húsavík:) Djöfusins snilld verður að koma heim um jólin og sjá þessar "perlur" með berum augum, ég ætla samt að vona að Bjarni Bólaursjnafjnkfa verði ekki með sólgleraugun sem að ég frétti að hann hafi verið með á djamminu um daginn því að þá neyðist ég til að segja honum það pent að fleigja þeim af sér:) Svo verð ég hreinlega að sjá Sidda á sláturhúsinu hjóla á FULLU í fysta gír úr vinnunni eða í vinnuna:) Agalega duglegur Siddi held ég.. Talandi um Sidda þá er Siddi í bókabúðinni eða boxarinn eins og hann er stundum kallaður náttulega ekkert eðlilega mikil "perla" :) Hvernig var það með Sidda, jón friðrik? Ég get náttulega talið svona endalaust upp en ég held að maður fari ekki að byrja á því en í staðinn nefni einn í viðbót og það er lyngbrekku-Kalli sem er að náttulega í það hressasta svona yfir hátíðarnar.. Ef ég þekki hann rétt þá er hann búinn að hlaða utan á húsið sitt jólaskreytingum og þá er ég ekkert að tala um þessar hefðbundnu skreytingar, ónei, han var t.d. með eitt svona píramídaljós í fyrra í einum glugganum og alls konar. já og svo er hann jafnvel búinn að panta sér ferð til Spánar með fjölskylduna:) hahahaha.. Það er alveg spurning hver verður jólabarn Crasybird þessi jólin en ég veit að Dísa verður ekki í baráttunni þar sem að Slétti úlfurinn fór heldur illa með húsið hennar og ég held að þakskeggið eins og það er í dag beri hreinlega ekki uppi allar þessar seríur sem að Dísa er vön að hafa, en kanski kemur hún á óvart, það er ekki hægt að segja til um hvað hún gerir þegar kemur að jólaskrautinu :S  ... Ég er reyndar ekki kominn í jólaskapið enþá en ég held að það gerist ekki fyrr en að ég heyri Hjálpum þeim lagið í útvarpinu og sjái jólaskrautið í Borgarhólsskóla, þá er það komið hjá mér;) En já minningarnar sem ég hef verið að hugsa um núna á meðan ég sit hérna og hlusta á gömul lög í HP inum mínum .. Hmm ég man t.d. mjög vel eftir því þegar að Pálmi og Friðrik björguðu mér í orðsins fyllstu merkingu af Höfðaveginum en það er verið að tala um að næsta sería af 24 verði um þann leiðangur og hvernig vonlaus staða bryettist í unna stöðu:) Hehe.. Svo í beinu framhaldi af því fór ég að rifja upp af hverju ég byrjaði að kalla Nonna Draumsa .. Hahaha vill ekki fara nánar út í það hér en YOU NOW IT !! ég get haldið endalaust áfram, man vel eftir því þegar Bjarni Pedda kom inn í bílskúr þegar við vorum að spila og draslaði Pálma og fleiri sem voru þar staddir, hehe og labbaði svo út:) Ok ég ætla að hætta að hugsa um Badda núna því að það er svo margt fyndið sem kemur upp í hugann, eins og þegar við vorum að spila heima hjá mér og ég þurfti að hlaupa á eftir Badda til að byðjann afsökunnar, ég rétt bjargaði honum í leiðinni því að hann var næstum búinn að labba inn á Baughól 12 og rifja upp gömul kinni þar:) HAHA.. En ein sú skærasta minningin hlýtur að vera þegar að Helgi var inni á klósti að byðja Tinnu um að fyrirgefa sér og sagði henni að hann væri bara svona húmoristi og réði ekkert við það, stundum segði hann bara svona eitthvað klikkað og réði bara ekki við það, ég veit ekki enþá hvað það átti að skipta máli í þessari fyrirgefningu en Helga fannst það vera lykilatriði að láta það koma fram og ég veit ekki hvort tinna sé búin að fyrirgefa honum þetta en ég ætla að vona það:) En allavega þá ældi ég næstum því úr hlátri! Talandu um ælu þá er einn maður sem að ælir altaf þegar hann er fullur.. Og það er Pálmi Rafn!! Vildi bara að það mundi koma fram að hann æli yfirleitt á fylleríum, man nú vel eftir þegar að ég, Pálmi og Hemmi vorum heima hjá mér og ætluðum að græja okkur skot en ómar bróðir átti Hawian club í skápnum heima.. Ég græjaði 3 skotaglös en lét vatn í tvö þeirra en HC í eitt, svo tók Pálmi HC og ældi fallega en eg og Hemmi tókum vatnið og ældum ekki en vorum til í annað skot en þá lék ég sama leikinn og Pálmi fékk aftur HC, og viti menn, hann ældi aftur en ég og Hemmi vorum bara eins og klettar :) En eigum við eitthvað að fara í Gumma Óla eða? nei ætli það sé ekki nóg að nefna þegar hann hræti á dyravörðinn á hótelinu sem var einmitt búinn að myrða einn mann næstum því og sitja inni á Litla-Hrauni og ég veit ekki hvað og hvað :) hehe ég var líka að skoða folk.is síðuna mína gömlu og þar er hellingur af glæsilegu og gömlu efni en hér er linkurinn inn á hana:) Og þar finniði fyndnar sögur maður, gaman að rifja það upp!! Nú er ég hættur en hlakka til að koma heim um jólin og hitta ykkur sem ég þekki þarna:) Strákar við verðum að taka svona hitting eins og í fyrra, taka trektina sem ég stútaði í fyrra og dusta af henni rikið:) Talandi um það kvöld, hver var það sem að meig í plastskálina af því að hann var ekki með pissuspil í drykkjuleiknum?? Var það ekki Gummi Óli eða? En svo má kanski til gamans geta að ég er kominn með fórnarlamb fyrir Fimbulfambið sem við tökum pottþétt :) Má kanski segja að það fórnarlamb eigi það alls ekki skilið frá mér að vera tekið í gegn þar sem það getur ekki með nokkru móti verið búið að að gera neitt á minn kostnað, en ég spyr ekki að því þegar að í Fimbulfambið er komið!!  Love it

En já ég er búinn að kaupa mér bíl.. Er að fara að ná í hann á eftir og mér hlakkar bara frekar mikið til;) Eg og Felgan erum LIKE THIS Jón Friðrik:) hahahahah.. Svo er naflalokkurinn að gera góða hluti en ég nenni ekki að hlusta á neitt diss í sambandi við hann, þið skiljið þetta seinna þarna í sveitinni:)

Later


» 46 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 17:22:13 / Justin

Test

Langaði bara að óska Himma til hamingju... er búinn að finna sér kjeeellingu.... náðist mynd af þeim um daginn... til hamingju Himmi og Lovísa.... þið eruð æði!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 19:29:59 / Justin

Drasl!!

Þetta er drasl þetta blog.central!!! er búinn að skrifa 3 löng blogg og það dettur alltaf út!!!! Þetta er bara ónýtt!!! Ömurlegt!!!! nenni að sjálfsögðu ekki að skrifa annað... ætla samt að koma með Basic atriðinn...

1. Hilli og Pálmar eru ömurlegir!! (alltaf að stríða mér... og ekki er Jói Kr. skárri!!!)

2. skoðunakönnun ný sem ég bið fólk um að virða og svara hreinskilnislega, ég er bara að athuga hvort þetta sé satt sem þeir eru að segja...

3. Birkir var að fá sér gat í naflann... mjög sérstakt af karlmanni! en honum finnst það flott!!

4. og eitt enn.. getur einhver sagt mér hvernig ég set inn mynd hérna????? bara svona hafa eina einfalda mynd sem mig langar að setja hérna inn í þetta litla saklausa blogg mitt? gott ef einhver nennti að skrifa það í skoðanir sem kann það... Fær verðlaun fyrir!!!

Mæli með að þið skoðið þessa síðu... fann hana á b2.is og eru þetta fyrstu dagar hans sem samkynhneigðs ungs drengs.. var að finna sjálfan sig...

www.123.is/himmi

Bæ!


» 29 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18